VÍM102
24. apríl 2008 klukkan 19:28
Þessi síða er forvarnaverkefni í áfanganum Vím102 í Menntaskólanum á Akureyri. Tilgangur síðunnar er að vekja ungt fólk til umhugsunar um áfengisnotkun almennt. Öll skrif eiga að vera frekar hlutlaus og raunsæ en ekki leiðinleg predikun og heilaþvottur, bara svo það sé á hreinu. Mikið af því forvarnaefni sem er á markaðinum í dag er orðið frekar þreytt, alltaf einhver yfirgengilega ýkt dæmi, öll verstu tilfellin. Dæmi: stelpa sem byrjaði að drekka 11 ára, fór í meðferð 15 ára, byrjaði aftur að drekka 16 ára af því að hún hélt að hún myndi hafa stjórn á þessu, var komin í dópið 17 ára, reyndi að fyrirfara sér 18. ára.
Getum við ekki öll verið sammála um að þetta sé undantekning? Það eru ekki margir sem sjá sig í þessum sporum og því tel ég að verið sé að tala fyrir daufum eyrum. Af hverju ekki að taka dæmið um strákinn sem byrjaði að drekka í 9. bekk, djammaði næstum hverja helgi þegar hann byrjaði í framhaldsskóla, áttaði sig svo á því þegar hann var 22. ára að hann hefði enga stjórn á drykkjunni en fór samt ekki í meðferð fyrr en 23. ára og var þá búinn að drekka frá sér flest allt.
Sama hvort þú byrjar að drekka í 8., 9. eða 10. bekk eða eftir það þá gæti þetta orðið þín saga því það er ekki hægt að sjá fyrir fram hverjir missa stjórn á drykkju sinni. Þess vegna vil ég benda þér á að þú átt val um það hvenar eða hvort þú byrjar að drekka. Og veistu hvað? Það er í lagi að drekka ekki.

Anna Sonja Ágústsdóttir